Fræðslufundur Rósaklúbbsins 24.03.2022 kl. 19:30

Boðað er til fræðslufundar Rósaklúbbsins fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 19:30. 

Dagskrá:

  • Meltunga og Börkur

Friðrik Baldursson skrúðgarðyrkjumeistari og garðyrkjustjóri Kópavogs fjallar um uppbyggingu trjásafnsins í Meltungu, austast í Fossvogsdal, sem er eitt stærsta trjásafn landsins sem inniheldur m.a. vel á 3ja hundrað tegundir og yrki rósa. Friðrik hefur um langt skeið safnað upplýsingum um trjágróður á Íslandi, þar á meðal rósir, í gagnagrunn sem kallast Börkur.

  • Kaffihlé
  • Þekjubeð

Orri Þrastarson, stjórnarmaður í rósaklúbbnum og áhugamaður um ræktun eðalrósa ætlar að halda erindi um þekjubeð og segja frá sinni ræktun eðalrósa.

  • Kynning á nýrri heimasíðu félagsins

Hulda Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í rósaklúbbnum mun kynna drög að nýrri heimasíðu félagsins sem er í vinnslu.

  • Starfið framundan

Eggert Aðalsteinsson formaður Rósaklúbbsins ætlar að fjalla um starfið framundan.

  • Önnur mál

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Rósagarðurinn í Meltungu