1. gr. Nafn klúbbsins er Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands.

Heimilisfang Síðumúla 1, 105 Reykjavík. Klúbburinn er hluti af starfsemi GÍ.

2. gr. Markmið klúbbsins er að auka ræktun og þekkingu á rósum. Til að ná því markmiði ætla klúbbfélagar að:

  • Safna saman þekkingu og reynslu í ræktun rósategunda og yrkja hérlendis.
  • Afla reynslu á áður óreyndum rósayrkjum.
  • Hafa milligöngu um innflutning og ræktun á rósum.
  • Mynda samband við rósafélög í nágrannalöndunum, t.d. Nordisk Rosenselskab.
  • Miðla þekkingu með skrifum og fyrirlestrum.
  • Standa fyrir rósaskoðunarferðum og sýningum fyrir klúbbfélaga og almenning.
  • Efla alla þá menningu sem vegsamar rósir.
  • Stuðla að því að Rósaklúbburinn verði vettvangur til fræðslu og gleði fyrir félagsmenn sem hafa áhuga á rósum.

3. gr. Innganga í klúbbinn er eingöngu heimil félögum í Garðyrkjufélagi Íslands sem heldur skrá um félagsmenn. Hjón og sambýlisfólk hafa sameiginlega aðild að klúbbnum.

4. gr. Aðalfund Rósaklúbbsins skal halda í febrúar ár hvert. Boða skal fundinn skriflega með minnst 14 daga fyrirvara.

5. gr. Stjórnina skipa formaður, varaformaður og þrír meðstjórnendur. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn, samkvæmt uppástungu frá a.m.k. tveim fundarmönnum.