Rósaklúbbar eru starfandi á öllum Norðurlöndunum. Þeir eru félagsskapur áhugafólks um rósir. 

Rósaklúbbarnir utan Íslands eru:

Norrænu rósaklúbbarnir hafa myndað með sér samstarfsvettvang sem nefnt er “Norræna rósafélagið”. Félagið skipuleggur Norræna rósarhelgi á tveggja ára fresti og stendur fyrir sameiginlegum ferðum fyrir félagsmenn til mismunandi hluta Norðurlanda og annarra landa. Samstarf fer einnig fram með upplýsingaskiptum í gegnum aðildarblöð sem flest félaganna gefa út reglulega og eru þar hinir ýmsu viðburðir á vegum félaganna kynntir. 

Félögin hafa einnig komið upp Norrænum rósagörðum í hverju aðildarlandi þar sem plantað hefur verið völdum rósum frá hverju landi fyrir sig.

Tilgangur félagsins er:

  • að vera tengiliður og samstarfsaðili norrænu rósafélaganna
  • að stuðla að miðlun þekkingar og reynslu um rósir
  • að miðla upplýsingum sem varða sameiginlega hagsmuni
  • að stuðla að persónulegum samskiptum
  • að efla að öðru leyti áhuga á rósum á Norðurlöndum