Rósaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands var stofnaður 22. apríl 2002.

Allir félagar Garðyrkjufélags Íslands geta gengið í Rósaklúbbinn. Hjón og sambýlisfólk geta haft sameiginlega aðild að klúbbnum.

Félagsgjald er 1.000 kr. á ári og er innheimt með félagsgjaldi Garðyrkjufélagsins.

Í mars 2022 voru xxx félagar skráðir í klúbbinn.

Fræðslu- og kynningafundir

Haldnir eru 4-6 félagsfundir á ári að aðalfundi meðtöldum. Á sumrin er farið í garðaskoðanir til félagsmanna og í Rósagarðana sem tengjast félaginu. Einnig eru farið í vinnuferð að vori í rósagarðinn í Laugardal til að klippa og snyrta rósirnar sem þar eru.

Rósainnflutningur

Rósaklúbburinn flytur inn rósir fyrir félagsmenn á hverju ári. Stjórnin útbýr pöntunarlista sem félagsmenn geta valið úr. Rósirnar eru pantaðar allar í einu, fluttar inn og þær afhentar að vori.

Rósagarðar

Rósagarðarnir sem tengjast félaginu eru Rósagarðurinn í Laugardal, Rósagarðurinn í Höfðaskógi í Hafnarfirði og Rósagarðurinn í Meltungu í Kópavogi.

Í Rósagarðinum í Laugardal er verið að prófa Pólskar rósir sem félagið fékk að gjöf frá pólskum rósaræktanda

Frumkvöðlastarf

Rósaræktun af fræi frá Kanada.

Ræktun íslenskra rósa

Erlent samstarf

Rósaklúbburinn er í Norrænu sambandi rósaklúbba og í alþjóðasamstarfi. Haldnar er Norræn rósahelgi annað hvert ár, sem hefur þó riðlast í Covid 19 faraldrinum. Heimsráðstefnur eru haldnar á 3ja ára fresti.

Facebook svæði Rósaklúbbsins

Heimilisfang

Síðumúli 1 (inngangur frá Ármúla)
108 Reykjavík