Boðað er til fræðslufundar Rósaklúbbsins fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 19:30.
Dagskrá:
Friðrik Baldursson skrúðgarðyrkjumeistari og garðyrkjustjóri Kópavogs fjallar um uppbyggingu trjásafnsins í Meltungu, austast í Fossvogsdal, sem er eitt stærsta trjásafn landsins sem inniheldur m.a. vel á 3ja hundrað tegundir og yrki rósa. Friðrik hefur um langt skeið safnað upplýsingum um trjágróður á Íslandi, þar á meðal rósir, í gagnagrunn sem kallast Börkur.
Orri Þrastarson, stjórnarmaður í rósaklúbbnum og áhugamaður um ræktun eðalrósa ætlar að halda erindi um þekjubeð og segja frá sinni ræktun eðalrósa.
Hulda Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í rósaklúbbnum mun kynna drög að nýrri heimasíðu félagsins sem er í vinnslu.
Eggert Aðalsteinsson formaður Rósaklúbbsins ætlar að fjalla um starfið framundan.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.